Færsluflokkur: Dægurmál

Líst vel á þá hugmynd en...

er að spekulera hvort ekki megi frekar stoppa hana í klukkutíma á morgnana, svona rétt á meðan maður fær sér kaffi og les blöðin  Tounge
mbl.is Vilja seinka klukkunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heilbrigðiskerfi á villigötum.

Hér er enn eitt dæmið um fljótfærni og dómgreindarleysi heilbrigðisráðherra.

 


Jólalag.

Finnst þetta alltaf eitt besta jólalagið og þessi texti alveg yndislegur. Miklu betri en kertatextinn. Varð alltaf voða meir þegar ég heyrði þetta lag í gamla daga þegar eldri ungarnir mínir voru á þessum aldri (svona ca 5 ára) en er orðin svo harðbrjósta að ég helst alveg þurreyg núna Wink  Gat heldur ekki annað en brosað út í annað yfir tískunni á þessum tíma sem myndbandið er gert Tounge  Vona samt að einhverjir njóti lagsins  Heart


Ein tillaga í viðbót:

Skikkið lækna til að sinna vinnunni sinni á dagvinnutíma í stað þess að takmarka framboð á viðtalstímum milli klukkan 8 og 16 og beina fólki þar með á vakttíma heilsugæslunnar, sem er mun dýrari og læknavaktina, sem er einkarekin af læknum og því borguð af Sjúkratryggingum fyrir margfalda þá fjárhæð sem heilsugæslan er rekin fyrir.
mbl.is Vilja efla heilsugæsluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það þarf að draga úr kostnaði heilbrigðiskerfisins.

Á þessu ári er áætlað að sjúkratryggingar fari 2 milljarða fram úr fjárlögum. Þó fengu þær í sinn hlut yfir 26 milljarða á fjáhagsáætlun. Megnið af þessum peningum fer til sjálfstætt starfandi sérfræðilækna. Sérfræðilæknar reka sínar eigin stofur og skurðstofur þar sem engu er til sparað. Öll nýjustu tæki og tól og flottustu innréttingar og græjur. Það hefur verið reynt að draga úr kostnaði við þeirra rekstur en ekki gengið. Sá garður reynist alltaf of hár og því er ráðist á hann þar sem hann er lægstur. Tekin er af fremur ódýr þjónusta (hjúkrunarfræðingar eru ódýrari en læknar) sem hefur hjálpað til að langveik börn geti verið sem mest og lengst heima hjá sér. Það endar nefnilega alltaf á því að börn, sjúklingar, barnshafandi konur og gamalmenni fá skellinn þegar skera þarf niður. 

Og á meðan sjúkratryggingar eyða milljörðum í skurðstofur fyrir sérfræðilæknana á höfuðborgarsvæðinu standa fullbúnar skurðstofur á sjúkrastofnunum úti um allt land vannýttar.


mbl.is Ætla að hætta að greiða Heimahjúkrun barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

og er þá jafnt á komið

með stjórn og stjórnarandstöðu! Þau ættu kannski bara að reyna að vinna saman að því að efla ímynd sína Grin
mbl.is Fáir ánægðir með stjórnarandstöðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju með daginn.

Í dag, 1. desember, er fullveldisdagur Íslendinga.


Slæm niðurstaða!!

Þessi listi endurspeglar alls alls ekki þverskurð af þjóðfélaginu og merkilegt hvað eru margir þarna sem hefðu aldrei átt að hljóta kosningu. Á þessum lista er 1 einstaklingur af mínum lista og 2 til viðbótar sem komust inn á listann minn en voru látnir víkja af honum til að skapa meiri jöfnuð. Hvar er allt landsbyggðarfólkið sem þyrfti að vera þarna til mótvægis við höfuðborgarbúana? Hvar er unga fólkið sem bauð sig fram? Var kannski vitleysa að kjósa á stjórnlagaþingið - þetta er eins óhlutlaust og hægt er að vera. Hefði e.t.v. verið betra að hvert byggðarlag/hreppur/sýsla hefði kosið sér fulltrúa á þingið? Æ maður veit ekki hvað er best í þessu en þetta er ömurleg niðurstaða.


mbl.is 25 kjörin á stjórnlagaþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maybe I should have.....

Hef verið að hugsa um það eftir sýningu myndarinnar "Maybe I should have" í ríkissjónvarpinu í gærkvöldi hvort kjörsóknin síðasta laugardag hefði orðið betri hefði sjónvarpið sýnt myndina viku fyrr. Það hefði kannski rifjað upp fyrir fólki hvers vegna þarf að endurskoða stjórnarskrána og hvað það merkir að búa í lýðræðisríki. Ég kemst bara ekki yfir vonbrigði mín með samlanda mína. Það mætti halda að 63% Íslendinga væri alveg sama hvað verður um landið og þjóðina.

Nafnið á Potassium

á íslensku er Kalíum. Hvernig væri nú að leggja dálítinn metnað í þýðingarnar sínar kæru blaðamenn?
mbl.is Lifði á kartöflum einum saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband