Færsluflokkur: Dægurmál

Spennufíkill

sú gamla. Er kannski orðin hundleið á hversdagslega lífinu og nokk sama hvort hún lifir eða deyr. Svo gerir fólk nú ýmislegt til að komast í hlýjuna og umönnunina. Kannski langar hana bara í pláss á elliheimili.
mbl.is 94 ára braut umferðarlög gróflega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var löngu vitað -

að sendiráð væru tímaskekkja sem ætti ekki við á okkar dögum. Þessi uppljóstrun breytir samt örugglega engu - það verður áfram spanderað í sendiráðunauta út um allar trissur. Menn láta nú ekki bitlingana frá sér baráttulaust.
mbl.is Afhjúpar tilgangsleysi sendiráða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju!!

Barnsfæðing er gleðilegur viðburður og ekki skemmir nú að fá tvö börn í einu Smile  Óska fjölskyldunni hjartanlega til hamingju og vona að gæfan haldi áfram að brosa við þeim hjónum og börnunum þeirra.
mbl.is Mary og Friðrik eignuðust pilt og stúlku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

sem sé

"Vegagerðin ráðleggur fólki sem sé á leiðinni í Herjólf að aka að Bakkaflugvelli og þaðan í Landeyjahöfn."

 Shocking

Vil nú ekki vera eins og Eiður - en............. 

 


mbl.is Óveður á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bestu óskir um gott nýtt ár.

Vona að árið 2011 verði ár endurreisnar og uppfyllingar væntinga. Ætla svo sannarlega sjálf að vinna ötult að því að endurrreisa mitt eigið efnahagslíf og koma lífinu á réttan kjöl. Orðin hundleið á að basla og bisast og sjá aldrei útúr blankheitum og vandræðagangi. Stefni að því að í lok ársins 2011 nái endar saman og yfirdrátturinn og Visað standi á núlli. Ég veit að það er gífurlega langsótt en ef ég ætla að halda sönsum þá bara verður það að takast. Vona að ykkur hinum gangi vel í ykkar viðfangsefnum og áramótaheitum.

money_heaven_cover


Loksins

.. kemur almennilegt vetrarveður hér á Selfossi Smile  Nú er snjókoma og vindur - gæti jafnvel orðið að stórhríð. Finnst alltaf eitthvað heillandi við vont vetrarveður (a.m.k. á meðan ég þarf ekki sjálf að þvælast úti í því) og viðeigandi svona um jólaleitið að fá smá gusu af snjókomu Smile Er annars bara í vinnunni hugsandi meira um það sem eftir er að gera heima en það sem gera þarf í vinnunni Blush  Hlakka til að fara í mat til dóttlu minnar á eftir - hangikjöt þar á bæ eins og á mínum bæ á Þorláksmessu alla tíð og heima hjá mömmu minni á uppvaxtarárunum Joyful

Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og heilla, hamingju og gnægð fjár á nýja árinu Heart

god_jul-hygge


Fallegt úti

Mikið er himininn fallegur í vetrarkuldanum - allur bleikur og mistraður. Gat því miður ekki myndað himnagalleríið því ég er í vinnunni þennan stutta tíma sem birtan varir og síminn minn tekur ekki nógu góðar myndir. Lítið þið bara út um gluggana ykkar og njótið Joyful

Minni sala á lambakjöti.

Þessi frétt birtist á vefsíðu Rúv. 

Það skyldi þó ekki vera að rándýrt, illa verkað kjöt sé hætt að höfða til bragðlauka landans. Fitubrákuð kjötsúpa með ullarhærðum beinabitum heyrir kannski fortíðinni til. Verður svona eins og þorramaturinn sem fáir gætu hugsað sér að borða nema til skrauts. Ég myndi frekar kjósa lambakjöt unnið eins og nautakjöt, meirir vöðvabitar og minna af beinum. Svo ætti að lækka verð á lambakjöti þar sem kostnaður við tilbúnað þess er fremur lítill. Lömbin eru jú uppi á heiðum mestan sinn vaxtartíma. Og að auki tel ég ekki sanngirni í að tvíborga fyrir kjötið - beingreiðslur til bóndans teknar úr vasa almennings og síðan óhófleg álagning sem líka er tekin úr vösunum okkar.

Segi bara svona


Gáfulegt...

Á Barnalandi var verið að auglýsa Papillon hvolpa til sölu og eitt svarið við auglýsingunni var svona:

"sælt verið fólkið mer dauðlangar i einn hvolp helst chiwawa ma vera blengingur og helst læða :D"

 


Jólin koma þótt Trölli reyni að stela þeim


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband