Færsluflokkur: Dægurmál

Rétt upp hönd ....

sá sem trúir því að launin þeirra verði lækkuð aftur 1. febrúar 2013!!
mbl.is Dómarar fá 101.000 kr. launahækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju þarf að minnka hrukkur?

Ég bara er svo sljó að ég skil ekki af hverju verið er að hvetja til hrukkuleysis. Hrukkur eru bara eðlilegur fylgifiskur hækkandi aldurs og við þurfum ekkert að vera að fela það að við séum lifandi. Margar hrukkur í kring um augun sýna einmitt bara að við höfum hlegið og brosað og hrukkur um munn að sorgin hefur líka knúið dyra hjá okkur. Svo verum bara stolt af hrukkunum okkar og látum ekki snyrtivöruframleiðendur telja okkur trú um að við eigum að líta út fyrir að vera tvítug alla okkar ævi Smile
mbl.is Segja nýtt hrukkukrem virka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru konur klikkaðar?

 2hustlerjune9

Angar klámvæðingarinnar halda áfram að misþyrma konum og meybarnatískan tekur sífellt á sig ljótari myndir. Nú eru skapabarmaminnkanir í tísku. Og budda lýtalæknanna fitnar fyrir hverja konubuddu sem rýrnar. Veit fólk ekki að hlutverk skapabarmanna er ekki fagurfræðilegs eðlis heldur hafa þeir þann tilgang að auðvelda fæðingu og hlífa spönginni og endaþarminum við rifum í fæðingu. Fyrir utan að þeir halda slímhúðum kynfæranna rökum og stuðla þannig að eðlilegri leggangaflóru. Hvenær ætla konur að hætta að misþyrma sjálfum sér í nafni fegurðar og tísku? Höfum við á Vesturlöndum nokkuð efni á að gagnrýna umskurð og kynfæramisþyrmingar á stúlkum í Sómalíu og víðar þegar okkar eigin dætur gangast undir svipaðar aðgerðir í nafni hégóma?

_45111776_fgm_ap226b

Á meðan konur halda áfram að veðsetja sjálfar sig fyrir tísku og ýmindaða fegurð er engin von til að jafnrétti náist með kynjunum. Þá fyrst þegar konur kæra sig kollóttar um tískustrauma og líkamsbábyljur verða kynin jöfn.

womanseximpeded

Ég skora á íslenskar mæður að innprenta dætrum sínum slíka virðingu fyrir því stórkostlega sköpunarverki sem líkami þeirra er að þeim komi aldrei til hugar að misþyrma honum í eltingaleik við tískubólur samtímans.

 

LX4O7HCAF1FE2FCALBXAZRCABJCFJMCAWFTY6QCAB2WFP3CAFAIHN3CAQCTMCKCAI85RLZCANJZVJCCANZ9MBRCAJ5R9GSCA4M3H01CA6JX9UJCABP3HQOCA31926GCAUS1TTRCAHL401QCAO9TWUY


Af hverju

veittu þeir manninum áminningu? Það hefði verið nær að ræða vel við frúnna Woundering
mbl.is Fékk ekki að horfa á handboltann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér skilst..

.. að þá eigi maður að segja: "mikið var nú gott að björgunarsveitirnar fengu að æfa sig" í staðinn fyrir: " hvað eru menn að álpast á fjöllum um hávetur þegar allra veðra er von?"
mbl.is Heill á húfi á Eyjafjallajökli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æ greyin mín gráu.

Hvaða andsk.... kellingavæll er þetta í ykkur. Það er til hellingur af fólki hér á landi sem þarf miklu frekar á aðstoð alþingis að halda en þessi kona sem vísað var frá Noregi. Af hverju eruð þið ekki að vinna þau störf sem þið voruð kosnir til í stað þess að reyna að afla ykkur vinsælda með svona bulli. Af hverju ætti svo þessa konu líka að langa til að verða íslenskur ríkisborgari. Hún er alin upp í Noregi og ætlaði að vera þar áfram. Eins og ég segi: hættið þessum kellingavæli. Farið frekar og bjargið heimilislausum Íslendingum. Eða það sem væri betra fyrir menn sem vinna á þennan hátt: segið af ykkur þingmennsku!


mbl.is Maria Amelie verði Íslendingur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandræði eru þetta.

Búið að eyða morðfjár í framkvæmdina en ekki nógu vel vandað til verksins. Leitt að þetta fór svona. Hvað gera bændur nú?
mbl.is Stjórnlagaþingskosning ógild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og þá er um að gera

að loka sem flestum leguplássum á kragasjúkrahúsunum til að eiga nú örugglega ekki í neitt hús að venda. Já og fækka sem mest starfsfólki á öllum sjúkrahúsum landsins.
mbl.is Skæðar umgangspestir herja á fólk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki ósvipað

íslensku  þjóðinni.  Þeir ríku bárust reyndar meira á árið 2007 og hefur mögulega fækkað eitthvað en á sama tíma hefur þeim fjölgað sem ekki eiga til hnífs og skeiðar. Hallærisleg staða í landi sem hefur alla burði til að bjóða þegnum sínum jöfnuð á öllum sviðum.
mbl.is Mikill munur á lífskjörum í Íran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef ég ætti barn

sem væri í Menntaskólanum Hraðbraut þá væri ég ekki sátt við að skólagjöldin færu í rifrildi við andstæðinga skólans í forsíðuauglýsingu á Mbl.is  

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband