Hvorum megin heiðar?

Ég lenti nýverið í forvitnilegum umræðum við karlmann um forgangsröðun. Í kjölfarið spurði ég nokkra kunningja eftirfarandi spurningar og svörin komu mér heldur betur á óvart. Mér þætti mjög gaman að sem flestir svöruðu spurningunni:

Ef þú ættir fyrirtæki á Selfossi en fjölskyldu í Reykjavík hvorum megin heiðar myndir þú kjósa að verða veðurtepptur?

 

 

 

Setti þessa spurningu einnig upp sem skoðanakönnun fyrir þá sem ekki vilja svara undir nafni.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Hjá fjölskyldunni minni :-)

Jónína Dúadóttir, 9.11.2011 kl. 21:09

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Segi sama og Jónína. Get að öðru leiti ekki tekið þátt í könnuninni hún er of staðbundinn fyrir mig.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.11.2011 kl. 21:22

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ef ég væri með fjölskyldu, sem vildi búa í Reykjavík og hvergi annars staðar og ég setti upp fyrirtæki á Selfossi, þá væri ég að gefa í skyn að ég væri alveg til í að lifa án hennar.......   

Jóhann Elíasson, 9.11.2011 kl. 21:39

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ef ég væri með fjölskyldu, sem vildi búa í Reykjavík og hvergi annars staðar og ég setti upp fyrirtæki á Selfossi, þá væri ég að gefa í skyn að ég væri alveg til í að lifa án hennar.  Það væri nokkuð sama hvar ég væri veðurtepptur......   

Jóhann Elíasson, 9.11.2011 kl. 21:41

5 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Á litlu kaffistofunni

Svanur Gísli Þorkelsson, 10.11.2011 kl. 00:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband