22.10.2011 | 00:27
Atvinnuvettvangur lækna?
Er það allt sem íslenskt heilbrigðiskerfi snýst um? Að læknar hafi vinnu? Ósköp eru það dapurleg skilaboð til íslenskra skattgreiðenda
"Á fundinum var m.a. samþykkt ályktun þar sem skorað er á stjórnvöld að einhenda sér tafarlaust í að gera íslenskt heilbrigðiskerfi að atvinnuvettvangi fyrir lækna á ný."
Þessi orð segja margt um kröfur lækna til forgangsröðunar heilbrigðiskerfisins. Fyrst skal hugsað um læknana en skjólstæðingar þeirra skipa svo afgangssæti. Ekki skrýtið að íslenska heilbrigðiskerfinu sé að blæða út. Smám saman hefur Mammon náð að stroka út Hyppocratesareiðinn.
Ég legg til að við leggjum niður heilbrigðiskerfið í núverandi mynd og reisum það svo upp á nýtt með þarfir fólksins í landinu í fyrirrúmi.
Nýr formaður Læknafélagsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég hef alltaf litið þannig á að læknirinn er þarna fyrir mig, en ekki ég fyrir hann bara svo hann geti haft vinnu og fengið kaupið sitt... og ég fer aldrei ofan af þeirri skoðun minni
Góða helgi mín kæra
Jónína Dúadóttir, 22.10.2011 kl. 09:20
Sammála þvi Jónina min. Takk sömuleiðis.
Dagný, 22.10.2011 kl. 10:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.