27.5.2011 | 16:35
Langur tími eftir enn.
Þótt ekki hafi orðið mikill fjárfellir í sjálfu gosinu er viðbúið að eitthvað af skepnum eigi eftir að falla vegna þess. Þar sem 5-7 cm lag af ösku er yfir túnum og heiðum er enn talsvert í að gras nái að vaxa i gegn um öskulagið. Á meðan þurfa kindurnar að borða hey og það er ekki jafn kjarngott og nýgræðingurinn. Fyrir vikið gæti orðið mjólkurskortur hjá lambánum og þar sem lömbin geta ekki náð í nýgresi til að bæta sér það upp er viðbúið að eitthvað af þeim farist úr hungri.
En það þýðir ekki annað en að vona það besta - það hefur sýnt sig að náttúran er óútreiknanleg og oft fer allt á besta veg.
Nokkurt tjón á túnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Blessuð náttúran... hún er óútreiknanleg...
Góða helgi
Jónína Dúadóttir, 28.5.2011 kl. 06:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.