Færsluflokkur: Bloggar
16.11.2010 | 13:48
Ekki skrítið að fæðingum fjölgi á FSA
Það er búið að loka öllum öðrum fæðingadeildum fyrir norðan. Nú þurfa konur frá öllu norðurlandi að fæða á FSA. Hugsið ykkur að fara af stað í fæðingu frá t.d. Kópaskeri í veðri og færð eins og verið hefur undanfarið. Þá heyrist sagt: "já en hún verður bara að fara til Akureyrar/Reykjavíkur í tæka tíð fyrir fæðinguna". En bíðið þið við - hvenær er tímabært að fara að heiman? Er það daginn fyrir áætlaðan fæðingardag, viku, hálfum mánuði fyrr? Hvað ef hún gengur svo tvær vikur fram yfir? Og hvert á konan að fara? Það er alltaf látið eins og fólk eigi innskot hjá ættingjum og vinum nálægt sjúkrahúsunum. Sú er þó ekki alltaf raunin því það er í alvöru til fólk sem á enga að á þessum stöðum - allavegana ekki nógu nákomna til að setjast upp hjá þeim svo dögum og vikum skipti. Og á konan að fara ein að heiman frá sér til að setjast upp hjá Lúllu afasystur í 2 - 4 vikur? Eða er kannski ætlast til að maðurinn hennar taki sér frí til að fara með henni? Það má líka allt eins vera að konan sé enn í vinnu við 38 vikna meðgöngu (þótt ég mæli ekki með því). Og hvað með eldri börnin sem eru í grunnskólanum - á bara að taka frí fyrir þau líka? Og öll familían að setjast upp hjá Lúllu gömlu!!!? Eða er þessi barneign bara einkamál konunnar og nóg að hringja austur/vestur þegar barnið er fætt og segja tíðindin? Já og ferðast svo með nýfætt barnið aftur heim um allt að 600km leið í allskonar veðri. Já skynsamlegar eru ráðstafanir ráðamanna - eða þannig sko!!!!!!!
Mikið að gera á fæðingardeildinni á Akureyri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.11.2010 | 10:12
Tvöfalt afmæli
Litlu tvíburastelpurnar mínar vaxa óðfluga - eru orðnar stórar skólastelpur. Þær áttu 6 ára afmæli í gær. Finnst svo stutt síðan þær fæddust - 7 vikum fyrir áætlaðan fæðingardag - 6 og 8 merkur. Það voru erfiðir tímar. En það rættist úr öllu og þær eru sannkallaðir gleðigjafar. Svo ætlum við að halda stóra afmælisveislu á laugardaginn - með tvenns konar afmælistertum því þær hafa sko ekki sama smekk á neinu. Önnur vill Solluköku eða prinsessuköku en hin þolir ekki þetta bleika þema og vill bara íþróttaálfsköku
Eigið góðan dag vinir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2010 | 23:47
12 milljónir?
Barnshafandi kona sótt til Eyja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.11.2010 | 14:49
Hvað með þann..
10 ára eignast barn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.10.2010 | 14:55
Gott mál.
Karlar flykkjast í ófrjósemisaðgerðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.10.2010 | 21:53
Langtímaleiga!!
Íbúð stóð óhreyfð í 70 ár | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
12.10.2010 | 09:15
Dálítið 2007
Glæsihótel á Þingvöllum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.10.2010 | 09:29
Ég á Alþingishúsið!!!!!
Og mér finnst ótækt að einhverjir ribbaldar séu að skemma mínar eigur.
Alþingishúsið er gamalt og mjög sérstakt hús og er í eigu íslensku þjóðarinnar allrar. Þótt þeir sem vinna inni í því hafi gert þjóðinni margt til miska er hún ekkert bætt með því að húsið sem hýsir þá sé eyðilagt. Reyndar er hún verr sett er laga þarf eigur hennar fyrir hundruði þúsunda. Er nú ekki nóg sem við þurfum að borga án þess?!
Mótmælum aðgerðum stjórnvalda eins hátt og við getum en sleppum því að skemma og meiða. Það kemur okkur ekkert áleiðis.
Köstuðu hellum í þinghúsið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.10.2010 | 16:34
Og á meðan....
eru barnabætur lækkaðar, skattar hækkaðir og skorið blóðugt niður í heilbrigðiskerfinu.
Segjum okkur tafarlaust úr NATO.
Framlag til NATO hækkar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)