Gott mál.

Ófrjósemisaðgerð er góður kostur þegar fólk hefur eignast öll þau börn sem það vill og/eða treystir sér til að framfleyta. Þegar gerð er ófrjósemisaðgerð á konu er það gert í kviðarholsspeglun þar sem eggjaleiðarar eru klipptir í sundur eða sett á þá klemma og aðgerðinni fylgja töluverðir verkir í langan tíma sem og hætta á samgróningum og kviðarholssýkingum. Ófrjósemisaðgerð á körlum er mun sársauka- og áhættuminni þar sem ekki þarf að fara inn í kviðarholið heldur einungis aftan á punginn þar sem gerð eru lítil göt og klippt á sáðrásirnar. Þannig að vitaskuld er það eðlilegra að þegar hjón gera upp hvort skuli fara í ófrjósemisaðgerð eftir að barneignum lýkur þá taki karlinn það að sér.
mbl.is Karlar flykkjast í ófrjósemisaðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Langtímaleiga!!

Ætli einhver á Íslandi myndi leigja út íbúð í svona langan tíma?

Dálítið 2007

Hörmulegur steinkumbaldi úr öllum takti við umhverfið og söguna. Gott að þetta er ekki á teikniborðinu í alvörunni. Nóg hefur nú verið um peningasóun í ljóta steinkumbalda í opinbera geiranum.

Ég á Alþingishúsið!!!!!

Og mér finnst ótækt að einhverjir ribbaldar séu að skemma mínar eigur. Alþingishúsið er gamalt og mjög sérstakt hús og er í eigu íslensku þjóðarinnar allrar. Þótt þeir sem vinna inni í því hafi gert þjóðinni margt til miska er hún ekkert bætt með því að...

Og á meðan....

eru barnabætur lækkaðar, skattar hækkaðir og skorið blóðugt niður í heilbrigðiskerfinu. Segjum okkur tafarlaust úr NATO.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband