23.12.2010 | 12:16
Loksins
.. kemur almennilegt vetrarveður hér á Selfossi Nú er snjókoma og vindur - gæti jafnvel orðið að stórhríð. Finnst alltaf eitthvað heillandi við vont vetrarveður (a.m.k. á meðan ég þarf ekki sjálf að þvælast úti í því) og viðeigandi svona um jólaleitið að fá smá gusu af snjókomu
Er annars bara í vinnunni hugsandi meira um það sem eftir er að gera heima en það sem gera þarf í vinnunni
Hlakka til að fara í mat til dóttlu minnar á eftir - hangikjöt þar á bæ eins og á mínum bæ á Þorláksmessu alla tíð og heima hjá mömmu minni á uppvaxtarárunum
Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og heilla, hamingju og gnægð fjár á nýja árinu
Athugasemdir
Gleðileg jól Dagný mín og farsælt nýtt ár.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.12.2010 kl. 18:07
Takk sömuleiðis Ásthildur mín. Hugsa oft til ykkar í kúlunni
Dagný, 23.12.2010 kl. 22:10
Ég óska þér gleðilegra jóla og farsæls komandi árs
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 24.12.2010 kl. 01:47
Takk sömuleiðis Jóna mín.
Dagný, 25.12.2010 kl. 23:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.