Færsluflokkur: Dægurmál
11.5.2012 | 20:30
Hið íslenska menningaruppeldi?
Hvað gengur uppeldismenntuðu fólki til að stefna börnunum á svo lágkúrulegan múgsefjunarviðburð?
Ég hef miklar áhyggjur af uppvaxandi kynslóðum Íslendinga sem neyðast til að sitja undir svona lágkúru frá unga aldri. Í leikskólum landsins (nema Hjallastefnu-) eru börnin látin hlusta á allskyns dægurtónlist og þykir víða voða krúttlegt að láta þau syngja með - því kjánalegri texti, því krúttlegra. Og helst eiga litlu stelpurnar að dilla bossanum með og strákarnir að gera bardagatakta. Svo heldur þetta greinilega áfram upp skólagönguna í sumum skólum eins og þarna kemur fram.
Hvað eiga foreldrar að gera þegar kennurum dettur svona bjánagangur í hug? Það er erfitt að vera leiðinlega foreldrið sem segir "nei ég vil ekki að barnið mitt taki þátt í svona lágkúru" og barnið sem situr eftir af því að foreldrarnir vilja ekki að barnið taki þátt í lágkúrunni missir af því að vera með félögum sínum í sameiginlegri upplifun og hætt við að það lendi útundan og jafnvel í einelti af því það er svo "púkalegt".
Að mínu mati á skólastarf ekki að snúast um að elta tískudellur og dægurflugur. Hlutverk skóla er að leggja grunn að heilsteyptum einstaklingum sem bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðru fólki og umhverfi sínu, eru færir um að mynda sér eigin skoðanir og tjá þær á gagnmerkan hátt og þurfa ekki að elta tísku og múgæsing til að líða vel í eigin skinni.
Ef svona uppákomur þykja orðið sjálfsagðar í íslensku skólastarfi held ég að endurskoða þurfi menntun grunnskólakennara og þær kröfur sem gerðar eru til þeirra.
|
Mikil stemning á tónleikum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.5.2012 | 21:58
40 ár?!!!
Bull er þetta. Eftir 40 ár verður kallinn dauður og vonandi allt annar fjármálamórall tekinn við á Íslandi. Líst ekki á að svo stórt landsvæði verði lokað fyrir börnunum okkar undir eitthvað leynipukur.
Hafið þið annars eitthvað velt fyrir ykkur af hverju karlinn sækir þetta svona fast? Treysti ekki svona mönnum!
|
Huang Nubo fær Grímsstaði í 40 ár |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.11.2011 | 14:21
Hárrétt ákvörðun.
Takk fyrir Ögmundur. Þú stendur við þitt.
|
Beiðni Huangs synjað |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.11.2011 | 11:32
Snjór
Það snjóar - og snjóar. Fallegt og jólalegt og akkúrat tímabært því næsta sunnudag er fyrsti sunnudagur í aðventu

Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2011 | 21:21
Og Hallelúja !!!!!
Bjarni minnir mig á ástríðufullu ungliðana í Sjálfstæðisflokknum þegar ég var í menntó. Kraftmiklar ræður um gildi einkaframtaks og mammonsmála en mest þó skítkast yfir vinstri stefnunni sem kunni ekkert, skildi ekkert og gat ekkert.
Þetta virðist ekkert hafa breyst.
|
Verðum að skapa ný verðmæti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.11.2011 | 18:43
Tvöfalt afmæli.
Heima hjá mér er búið að hlakka til þessa dags í margar vikur og telja niður síðustu daga. Litlu minni tilhlökkun en fyrir jólin. Og nú er stóri dagurinn runninn upp - tvillurnar eiga afmæli
Sjö ár eru stór aldur - a.m.k. fyrir þær - og gleðin yfir afmælinu er svo einlæg, jafnvel þótt afmælisboðið sé ekki fyrr en um helgina. Þær fengu kókó og muffins í morgun og opnuðu svo pakkana frá okkur foreldrunum áður en þær fóru í skólann. Svo fengum við okkur stærðarinnar súkkulaðiköku þegar við komum heim úr vinnunni og skólanum
Og mínar eru alsælar 
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.11.2011 | 22:25
Til skamms tíma taldi ég
að Ísland væri velferðarríki og skattarnir sem við borguðum notaðir í eitt besta almannatryggingakerfi heimsins. Fólk gæti lagst á sjúkrahús og fengið meðferð við sínum veikindum án þess að borga krónu. En það var víst fyrir löngu síðan og Íslendingar borga nú sífellt meiri skatta en fá um leið minni þjónustu. Það er ekki nóg að það sé kvíðvænlegt að verða veikur vegna sjúkdóma og þess atvinnu- og launataps sem fylgir þeim, heldur þurfa sjúklingar nú líka að kvíða því að eiga ekki til hnífs og skeiðar þegar búið er að borga fyrir lækna- og sjúkrahúsheimsóknir og lyf. Og á meðan maka sérfræðilæknarnir krókinn þannig að í heilbrigðiskerfinu stendur vart steinn yfir steini.
Svei því bara.
|
Kostnaðarsamar krabbameinsmeðferðir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.11.2011 | 13:14
Okkar frábæra björgunarfólk.
Við Íslendingar megum svo sannarlega vera stoltir af okkar björgunarsveitafólki. Frábær fagmennska og vaskleg framganga einkennir alla þeirra vinnu. Nú er stutt í flugeldasöluna sem er aðalfjáröflunarleið björgunarsveitanna og það væri svo sannarlega óskandi að allir Íslendingar beindu flugeldakaupum sínum til þeirra.
Margfalt húrra fyrir björgunarsveitum Íslands!
|
Maðurinn fundinn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.11.2011 | 20:18
Hvorum megin heiðar?
Ég lenti nýverið í forvitnilegum umræðum við karlmann um forgangsröðun. Í kjölfarið spurði ég nokkra kunningja eftirfarandi spurningar og svörin komu mér heldur betur á óvart. Mér þætti mjög gaman að sem flestir svöruðu spurningunni:
Ef þú ættir fyrirtæki á Selfossi en fjölskyldu í Reykjavík hvorum megin heiðar myndir þú kjósa að verða veðurtepptur?
Setti þessa spurningu einnig upp sem skoðanakönnun fyrir þá sem ekki vilja svara undir nafni.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
8.11.2011 | 19:14
Haustskjálftahrina?
Fyrir u.þ.b. 10 árum var mikið um skjálfta í Mýrdalsjökli og í kjölfarið var viðbúnaðarstig hækkað og hlið sett á báða enda Mýrdalssands. Á þeim tíma átti ég oft leið um sandinn og fylgdist því grannt með fréttum af skjálftum og mögulega yfirvofandi eldgosi í Kötlu og Kötluhlaupi meðfram því. En eftir því sem frá leið hætti fólk að velta sér svona mikið upp úr þessu og áður en varði voru hliðin tekin niður og flestir keyrðu Mýrdalssandinn alls hugsunarlausir um Kötlu gömlu og vána sem hún ber í sér. En þó sló hjartað ögn örar nokkra daga á ári þegar fregnaðist af skjálftum í jöklinum og fólk flýtti sér eilítið meira yfir sandinn. Þar sem ég átti svo oft leið um sandinn hlustaði ég grannt á alla virtu vísindamennina sem útdeildu visku sinni um þetta merka fyrirbæri. Og eitt var það sem ég heyrði og vakti athygli mína; skjálftavirkni Mýrdalsjökulsfjallanna er mest á haustin þegar ísinn er þynnstur á jöklinum.
Í skýrslu um Mýrdalsjökul sem Mannvit vann fyrir Kötluvikur ehf v/mats á umhverfisáhrifum Vikurnáms á Mýrdalssandi í Janúar 2002 segir: ....." Skjálftavirknin undir Goðabungu er háð árstíðum. Skjálftar eru margfalt algengari þar á haustin en fyrri part árs. Þetta hefur verið túlkað þannig að á haustin er jökulfargið minnst og grunnvatnsþrýstingur í jarðskorpunni hæstur. Báðir þessir þættir lækka núningsviðnám á misgengisflötum í skorpunni og geta þannig stuðlað að aukinni skjálftavirkni (2) ." Og "Kvikuhólfin tvö undir Mýrdalsjökli ásamt megineldstöðinni í Eyjafjallajökli liggja á austur-vestur línu. Þessari línu fylgja einnig gossprungur og misgengi á Fimmvörðuhálsi og Seljalandsheiði. Einhver tengsl virðast vera á milli eldstöðvanna tveggja því bæði eldgosin í Eyjafjallajökli á sögulegum tíma, urðu á svipuðum tíma og Kötlugosin 1612 og 1823. Það er algengt að skjálftavirkni í annarri eldstöðinni leiði til þess að fáeinir kippir verði í hinni eldstöðinni (3) .2"
Hvernig var þetta áður en settir voru skjálfamælar á Mýrdalsjökulinn og Kötlusvæðið? Voru ekki skjálftar þá? Það segir í fréttinni að venjulega finnist einungis stærstu skjálftar í byggð. Hafa Mýrdælingar ekki orðið varir við skjálfta á hverju ári um þetta leiti? Er eitthvað meiri hætta á Kötlugosi núna en um þetta leiti í fyrra? Má ekki reikna með að um sambland af hausthristingi og Eyjafjallajökulsgoseftirköstum sé að ræða? Jarðeðlisfræðingarnir segja m.a.s. berum orðum að ekki sé gosórói í kortunum. Ef svo er, eigum við þá ekki bara að anda rólega og hætta þessari æsifréttamennsku?
Bendi ykkur svo á að lesa þessa stórmerkilegu skýrslu Mannvits:
http://mannvit.is/media/files/vikrunam_a_myrdalssandi_v2.pdf
|
Harður jarðskjálfti í Kötlu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)



Gudrún Hauksdótttir
Gunnar Rögnvaldsson
Guðjón Sigþór Jensson
Guðmundur Ásgeirsson
Guðrún Þóra Hjaltadóttir
Haraldur Hansson
Heimssýn
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
Jóhann Elíasson
Jóhanna Magnúsdóttir
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
Jónína Dúadóttir
Samtök Fullveldissinna
Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Þorbjörnsdóttir
Sigurjón Þórðarson
Stefán Friðrik Stefánsson
Svanur Gísli Þorkelsson
Svavar Alfreð Jónsson
Ía Jóhannsdóttir
Ómar Geirsson
Ómar Valdimarsson
Þorsteinn Valur Baldvinsson Hjelm