18.2.2012 | 17:51
Hann var ekki í vinnunni þegar hann sagði það.........
Ég er ljósmóðir. Ég er ekki bara ljósmóðir þegar ég er í vinnunni - ég ER ljósmóðir: Í vinnunni, heima hjá mér og hvert sem ég fer. Meira að segja þegar ég sef. Starfsheitið mitt mun standa undir nafninu mínu í andlátstilkynningunni þegar ég dey (sem ég vona að verði ekki alveg strax).
Læknir er læknir, verkfræðingur er verkfræðingur og kennari er kennari, þótt þeir séu ekki í vinnunni og jafnvel komnir á eftirlaun.
Það er ekkert sem bannar manni að blogga eða rífast á fésbókinni um hvað sem er, við búum jú sem betur fer við tjáningarfrelsi. Hefði ég fyrirlitningu á einhverjum þjóðfélagshópi þá væri ekkert sem bannaði mér að tjá mig um þá skoðun mína í hvaða miðli sem er.
En orðum fylgir ábyrgð, ekki síður en störfum og sum störf eru þess eðlis að manneskjan sem vinnur starfið verður fulltrúi þess og því vega öll hennar orð þungt og hafa áhrif, oft langt út fyrir það sem ætlunin var.
Snorri nokkur tjáði sig á blogginu um fyrirlitningu sína á samkynhneigðu fólki. Og ekki bara eigin fyrirlitningu heldur ber hann fyrir sig Biblíuna sem heimild fyrir skoðun sinni. Biblíuna sem heimilar að konur séu grýttar ef þær sofa hjá utan hjónabands, börn séu seld í þrældóm og hefna skuli auga fyrir auga.
Sem betur fer hafa flestir á Íslandi og í öðrum Vestrænum ríkjum tekið upp mildari siði. Það þykir t.a.m. ekki dauðasynd að stunda kynlíf fyrir giftingu og konur teljast ekki lengur eign eiginmanna sinna.
En Snorri má alveg hafa þær skoðanir sem honum hentar á meðan aðrir bera ekki skaða af. Og þar er komið að kjarna málsins.
Þær skoðanir sem Snorri viðrar á blogginu sínu geta mögulega skaðað. Það má vel reikna með að einhverjir nemenda hans séu samkynhneigðir. Kennarinn þeirra segir (að vísu ekki við þá beint) að það sé synd að elska manneskju af sama kyni. Að fólk sem það geri sé slæmt fólk og eigi ekki heima í samfélagi þeirra sem elska fólk af hinu kyninu.
Það finnst fáum gott að vera úrskurðaður slæm manneskja. Allra síst ungu fólki sem á alla framtíðina fyrir sér. Og fyrir það eitt að elska. En Snorri úthlutar þeim dómi á blogginu sínu sem öllum er frjálst að lesa - einnig nemendum hans.
Hann virðist hafa gleymt að hann er ekki bara kennari í vinnunni - hann ER kennari. Hans hlutverk er því, bæði í starfi sem og lífinu öllu, að uppfræða. Og þeir sem fá notið þeirra forréttinda að uppfræða þannig að fólk gangi vitrara, víðsýnna og fordómalausara inn í framtíðina (er það ekki annars hlutverk kennara?) þurfa meira en nokkur annar að gæta orða sinna.
Við Snorra vil ég segja: Það er aldrei slæmt að elska. Ástin er aflið sem leysir hið góða úr læðingi og það eina sem hefur möguleika á að breyta heiminum til betri vegar. Hvern þú elskar skiptir þar engu máli.
Þeim sem líður illa vegna orða Snorra (og annarra sem ráðast að þeim sem elska ekki "rétta" kynið) sendi ég hugheilar baráttukveðjur.
Að lokum er hér tengill á ræðu eins albesta og gáfaðast manns sem er uppi á okkar tímum, þar sem hann fjallar um kaþólsku kirkjuna og þá spurningu hvort hún sé gott afl í nútímasamfélagi. Það má alveg heimfæra upp á trú Snorra.
|
Ef ég lendi í helvíti rotna ég þar glaður |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.2.2012 | 13:05
Börn notuð í lyfjatilraunir?
|
Áhrif bólusetninga rannsökuð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.1.2012 | 19:35
Ég myndi nú ekki kalla húsið "kofa"
Sjálfsagt einir 200 fm ofanjarðar og fleirihundraðogfimmtíu neðanjarðar
En er þetta ekki annars húsið sem hann Stephen Fry sýndi okkur í Bandaríkjaferðalagi sínu í hitteðfyrra? Þá minnir mig að gamlir hippar hafi búið þar.
Hvað sem öllu líður hlýtur að vera svolítið skrýtið að búa ofan á svona djúpri holu
|
Kofi með kjarnorkuflaugabyrgi til sölu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.11.2011 | 14:21
Hárrétt ákvörðun.
Takk fyrir Ögmundur. Þú stendur við þitt.
|
Beiðni Huangs synjað |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.11.2011 | 11:32
Snjór
Það snjóar - og snjóar. Fallegt og jólalegt og akkúrat tímabært því næsta sunnudag er fyrsti sunnudagur í aðventu

Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)



Gudrún Hauksdótttir
Gunnar Rögnvaldsson
Guðjón Sigþór Jensson
Guðmundur Ásgeirsson
Guðrún Þóra Hjaltadóttir
Haraldur Hansson
Heimssýn
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
Jóhann Elíasson
Jóhanna Magnúsdóttir
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir
Jónína Dúadóttir
Samtök Fullveldissinna
Sigrún Jónsdóttir
Sigrún Þorbjörnsdóttir
Sigurjón Þórðarson
Stefán Friðrik Stefánsson
Svanur Gísli Þorkelsson
Svavar Alfreð Jónsson
Ía Jóhannsdóttir
Ómar Geirsson
Ómar Valdimarsson
Þorsteinn Valur Baldvinsson Hjelm